Edda Bj.
15.08.2006 20:44:54 / eddabj

Þorsteinn á afmæli!!

Halló halló!!!! Já, góðan dag og gott kvöld kæru landsmenn nær og fjær, til sjávar og sveita, hér á landi og í öðrum löndum!!

Í tilefni af því að hann Þorsteinn bróðir, Steini í Ameríku, er 23 ára í dag ákvað ég að blogga!!! Til hamingju með daginn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ég ætlaði eiginlega að gefa honum frænda eða frænku í afmælisgjöf en það virðist ekki ætla að takast! ÞVÍ MIÐUR!! Mér finnst eiginlega vera kominn tími á að þetta barn fari að láta sjá sig!!! Við skötuhjúin höngum bara alla daga og bíðum eftir erfingjanum!!! Meiri leiðindin maður!!!

Annars er ekkert að frétta og því til lítils að vera eitthvað að blogga. Þegar þetta barn lætur loksins sjá sig þá koma væntanlega myndir á símabloggið okkar þannig að þið skuluð bara fylgjast vel með þar........................................

Heilsist ykkur öllum.......................................


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 13:57:29 / eddabj

Tímamót!

Komiði öll blessuð og sæl hvar sem þið eruð, nær eða fjær!

Nú hafa orðið mikil tímamót í mínu lífi!! Ég er búin að selja djásnið mitt!! Já, ég er semsagt búin að selja bílinn minn! Þessi elska hefur fylgt mér á áttunda ár og nú er okkar sambandi lokið! Blessuð sé minning grænu þrumunnar :cry: Hún fór reyndar ekki mjög langt og ég kem væntanlega til með að sjá hana annað slagið......ég á eftir að horfa á hana með miklum trega :^)

Annars fer að styttast í sumarfrí.........veðrið reyndar ekki mjög sumarlegt þessa stundina og ekki næstu daga skilst mér.......nýju fínu garðhúsgögnin mín bíða eftir sól og sumri.........

Svo er það bara Eurovision í kvöld!!! Áfram Ísland!!!!!!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 14:01:48 / eddabj

Eitthvað einskis nýtt fyrir langa helgi!

Já góðan og blessaðan daginn! Löng helgi að ganga í garð.....mmmmm..

Þorsteinn setti svona inn hjá sér og ég ákvað að gera það líka svo hann gæti skrifað um mig :D

1. Hver ert þú?
2. Hver er ég?
3. Hvar hittumst við fyrst og hvernig?
4. Hvernig leist þér á mig þá?
5. Hvernig líst þér á mig núna?
6. Lýstu mér í einu orði:
7. Gefðu mér gælunafn, og segðu mér afhverju þú valdir það:
8. Hvað minnir þig á mig?
9. Hversu vel þekkir þú mig?
10. Hvar og hvenær sástu mig síðast?
11. Í hvaða stjörnumerki er ég, eða hvenær á ég afmæli?
12. Hvað meikar bara sens fyrir mig og þig? (finnst þetta reyndar vera hallærislega orðuð spurning!)
14. Hver er uppáhalds sjónvarpsþátturinn minn?
15. En bíómynd?
16. Á ég systkin? Ef svo er, nafngreindu þau:
17. Á ég kærasta? Ef svo er, hver er það?
18. Trúi ég á Guð?
19. Hvernig myndir þú lýsa mér fyrir öðrum?
20. Tókstu eftir því að það vantar nr. 13?
21. Ætlarðu að láta þetta á þitt blogg svo ég geti skrifað um þig?

Semsagt einskis nýtt bull................en hvað um það.....góða helgi......


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 10:33:14 / eddabj

Jæja!

Góðan dag landsmenn allir nær og fjær til sjávar og sveita! Langt er nú síðan síðast!!!

Páskafríið er búið..........ansi var þetta frí nú notalegt. Sissinn kom passlega heim til að fara með mér í páskafrí en er nú farinn aftur á sjóinn og kemur aftur í frí 1. júní þegar ég er alveg við það að fara í sumarfrí!!

Við skelltum okkur í borgina fyrir páska með Ingólfi og Fjólu og skemmtum okkur dægilega vel. Einn aðal tilgangur ferðarinnar var að sjálfsögðu að kaupa föt á konuna sem gildnar svo svakalega hratt um miðjuna! Það tókst svona líka fínt og önnur eins smartheit hafa vart sést áður!!! Við fórum auðvitað í sund og svo fórum við í keilu þar sem menn sýndu gríðarleg tilþrif. Þar tók ég t.d. eitt frekjukast og hafði mitt fram að sjálfsögðu (það fer nú enginn að reyna að mótmæla óléttri konu!! :lol: ) Við kíktum í heimsókn til ömmu Oddnýjar, skoðuðum barnavagna, fengum fræðslurúnt um Seltjarnarnesið o.s.frv. Semsagt þessi fína ferð :P

Ég skellti mér í messu á páskadagsmorgunn kl. 8. Virkilega notalegt, allavega þangað til í miðri messu að það leið næstum því yfir mig!! Hafið þið vitað það hallærislegra!! Ég mátti skrölta fram og hengja haus eins og einhver vesalingur!! Messukaffið á eftir var hins vegar mjög gott :D

En nú eru páskarnir búnir og grár hversdagsleikinn tekur við á ný. Það er reyndar ótrúlega stutt eftir fram að sumarfríi.........það verður aldeilis gott að fá sumarfrí með góðu veðri og dásamlegheitum.

Hilsen að sinni............


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 13:11:24 / eddabj

Vöfflur um páska

Sælinú allir saman!!!

Jæja, er ekki bara kominn vetur!!!! Spurning hvað hann verður langur í þetta skiptið!

Það er komin svo mikil vöfflupressa á mig um páskana að ég er að hugsa um að vera bara ekki á svæðinu!! Við kjarnafjölskyldan ásamt Ingólfi og Fjólu og þeirra börnum ætlum að bregða okkur í borgina um páskana!! Thanks!! Við erum búin að fá íbúð í Reykjavíkinni og ætlum að bruna suður á föstudaginn langa og koma til baka á mánudegi eða þriðjudegi. Kannski maður skelli bara í vöfflur í borginni á páskadag :lol:

Annars er fátt annað títt hér um slóðir. Sissinn er í 8 vikna útlegð, kemur heim 6. apríl og verður þá bara heima í 2 vikur!! Hann fær reyndar í staðinn 2 vikur í september í frí. Menn verða víst að gera allt til að færa til vikur þegar menn fá ekki fæðingarorlof!!! Ég fer nú ekkert nánar út í þá vitleysu hér.......................

Well...........................verð að fara að vinna.................hilsen í bili..............


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.02.2006 13:08:46 / eddabj

Latur bloggari...

Halló halló ég heiti Edda og ég er latur bloggari :$ Kannski verð ég einhvern tíma duglegur bloggari, hver veit............þangað til sjáum við bara til....

Það er sossum ekkert að frétta, lífið gengur sinn vanagang sem endranær.........

Það eru búnar að koma mjög skrítnar athugasemdir við síðasta blogg hjá mér, eitthvað algerlega óskiljanlegt með tilvísunum í einhverjar ruglsíður og dónasíður.................skrítið................

Hef ekkert að segja í bili.........veriði hress, ekkert stress og BLESS


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 16:11:49 / eddabj

Sumar á ný!!

Já góðan og blessaðan daginn!! Nú er sko aldeilis ástæða til að brosa á ný!! Sól skín í heiði, hætt að snjóa og útlit fyrir að veður fari hlýnandi :lol: Ég hef þess vegna ákveðið að geyma það enn um sinn að setja nagladekk undir grænu þrumuna. Þetta verður vonandi í síðasta sinn sem ég þarf að huga að nagladekkjum undir þennan annars dásamlega bíl. Við Sissinn stefnum nefninlega að því að sameina bílaflota okkar í einn bíl næsta sumar!! Þið getið semsagt farið að undirbúa tilboð í græna eðalvagninn!!! Ég set það bara sem skilyrði að hann lendi hjá góðu fólki :D

Ég vek sérstaka athygli á nýjum tengli hér á síðunni. Hún litla sæta nafna mín er nefninlega komin með síðu á barnaland.is þar sem hún setur reglulega inn myndir af sér og segir frá því helsta sem gerist í hennar lífi :P

Ég er mikið að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara jólatúrinn með Sissanum! Hann verður nefninlega aftur á sjó um jólin þessi elska :( Hann á svo líka að vera á sjó um áramótin en ætlar að reyna að fá frí. Veit ekki hvort það tekst en vona það svo sannarlega! Kannski maður ætti bara að setja inn skoðanakönnun hér til hliðar um þetta mál. Sé til hvað ég nenni að gera.

Bið annars bara að heilsa ykkur öllum.................................


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.09.2005 11:38:29 / eddabj

Á leiðinni í borg óttans!!

Góðan dag kæru vinir!! Nú styttist í að við kennararnir í skólanum skellum okkur í höfuðborgina, förum semsagt í dag kl. 17:00 stundvíslega. Ég geri ráð fyrir að þetta verði gríðarlega skemmtileg ferð enda ferðafélagarnir afar skemmtilegir :lol:

Ég var víst "klukkuð" hér um daginn sem þýðir að ég þarf að koma með 5 einskis nýtar staðreyndir um sjálfa mig.
1. Ég þoli ekki að sjá skakkar myndir á vegg, þarf oft að beita mig hörðu inni á heimilum annarra því mig langar svo að laga myndirnar á veggjunum hjá þeim!
2. Ég er því sem næst Bubbles fíkill!
3. Mér finnst ekkert vera eins vont á bragðið og sellerí.
4. Ég er myrkfælin.:klikk:
5. Það er sennilega ekkert sem hefur oftar grætt mig en sveipurinn í toppnum á mér!! (reyndar eru mjög mörg ár síðan ég grenjaði út af þessu síðast :P )

Já, svona er ég og þó ekki........................


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 20:40:42 / eddabj

Nýtt af nálinni!!

Helló helló.....................hvað er eiginlega í gangi hér á þessari síðu?? EKKERT!!! Mikið asskoti er ég löt að blogga!!!

Ég vek hérmeð sérstaka athygli á því að hér til hliðar má sjá nýjan tengil á símabloggsíðu okkar Sissans. Við erum semsagt bæði komin með gríðarlega flotta nýja myndavélasíma og ákváðum að sameinast um eina síðu :lol:

Annars er allt gott að frétta. Ég varð 35 ára í gær, algerlega dásamlegt. Ég bauð til teitis á laugardagskvöldið, aðallega systkinum og tengdasystkinum, hefði þurft að leigja sal hefði ég boðið fleirum!! Þetta var mjög gaman og hér fór fram öflug singstar keppni. Ég fékk fullt af fínum gjöfum..........ekki að spyrja að því :D

Sissinn fer aftur á sjóinn á fimmtudag :cry: og þá tekur einsemdarlífið við.........en svona er þetta víst og lítið við því að gera................

Jæja, er að fara að horfa á Út og suður........hann Gísli er uppáhalds sjónvarpsmaðurinn minn, ekki spurning :P


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.08.2005 15:38:37 / eddabj

Jæja!!

Góðan dag!!!!! Rosalega er ég lítið dugleg að skrifa á þessa síðu! Það gerist svosem lítið merkilegt hjá mér og því hef ég frá frekar litlu að segja!

Skólinn er byrjaður aftur..........allt í stuði þar.........við kennslukonurnar erum búnar að fá nýja vinnuaðstöðu...........þvílíkur lúxus, maður bara vill helst ekki fara heim úr vinnunni!!!!!

Kallinn kom heim í síðustu viku eftir langa útlegð....húrra fyrir því!!!! Hann er búinn að lofa að elda kjúlla í kvöld handa kellu, eins gott að hann standi við það!!

Ingólfur bróðir og Gunnhildur eiga afmæli á morgunn....til hamingju með það elskurnar mínar!!!

Það verður réttað um næstu helgi.........það er nú alltaf jafn skemmtilegt :P

Bið að heilsa í bili......................................


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2005 20:24:05 / eddabj

Einmana grasekkja!!

Nei, góðan og blessaðan daginn, eða bara gott kvöld!!! Já, takk fyrir, ég er enn á lífi.... eða eins og maður segir á henni enskunni....alive and kicking!!!

Ansi er nú langt síðan ég hef skrifað hér, samt virðast alltaf einhverjir fara hér inn til að tékka......skil ekki af hverju þið eruð ekki löngu búin að gefast upp á mér!!!

Ég er búin að vera að vinna í Darra undanfarið og er gersamlega frá af vöðvabólgu, þreytuverkjum, fótaeymslum og harðfiskgræðgi!!!! Já, maður er víst að verða gamall og skrokkurinn farinn að gefa sig :lol:

Ég horfði með öðru auganu á Opruh í gærkvöldi og þar voru aðþrengdar amerískar húsmæður að barma sér yfir hinu og þessu....ekkert kynlíf þegar menn eru búnir að eiga börn, enginn tími til að sinna vesalings eiginmanninum og þar fram eftir götunum. Stórkostlegasti punktur þáttarins kom frá konu einni sem sagði frá því að stundum þegar hún og maðurinn hennar væru að ríða (afsakið orðbragðið!!) þá horfði hún á sjónvarpið á meðan!!!

Og með þessum orðum enda ég þennan pistil minn í þetta sinn

bleeeeessssssss


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2005 20:56:29 / eddabj

I'M BACK!!!!!!

Halló halló halló!!!!! Þá er ég mætt aftur.....................loksins!!!!! Lofa samt ekki að ég verði dugleg að skrifa hér.......hef reyndar ekki mikið annað að gera (og ekki frá neinu að segja!!)

Jæja, ég fór semsagt í siglingu sem gekk bærilega.....ældi þrisvar, fór í sólbað í klukkutíma, hjólaði í þrjá klukkutíma, las nokkrar bækur o.s.frv.

 Svo er það sumarfrí Sissans..... Við fórum semsagt í sumarbústað á Bifröst síðasta föstudag og ætluðum að vera viku. Það var hins vegar hringt í The Siss á laugardagskvöldið og hann boðaður í vinnu. Við brunuðum því heim á mánudagsmorgun, hann flaug svo suður um kvöldið og til Holland á þriðjudagsmorgun. Hann kemur næst heim í frí 25. ágúst!!!!!!! L Ég húki því ein heima í grasekkjuhlutverkinu!!! Ætla reyndar til Reykjavíkur í næstu viku að hitta Sissann J Hann á víst afmæli á miðvikudaginn þessi elska. Nú er það bara spurningin hvað ég á að gefa honum!! Er einhver með hugmyndir handa mér?

 Einn af toppum þessa árs var tvímælalaust fimmtudagskvöldið 30. júní þegar ég (ásamt 10 þúsund öðrum) fór á tónleika með Duran Duran í Egilshöll!! Þessir tónleikar voru hreint út sagt geðveikir!!! Alger snilld!! Aldrei hefði ég trúað því að þessi gömlu goð væru svona góð á sviði!! Árið sem ég fermdist (1984!!!) snerist nánast allt mitt líf um Duran Duran. Þeir voru það æðislegasta sem var til og John Taylor var fallegasti karlmaður sem fyrirfannst á þessari jörð. Það var minn æðsti draumur að fá að sjá hann og þá Simon, Nick, Roger og Andy. Ekki hefði ég trúað því þá að það myndi gerast 21 ári síðar!!! Já, það er víst ábyggilegt að enginn veit sína ævina fyrr en öll er!!!

 Um helgina er ættarmót hinna nísku Nollara!! Nefndin tímir ekki einu sinni að láta fólk vita af því hvernig þetta á að fara fram!! Afar undarleg skipulagning í gangi þarna!! Á morgun á svo að grilla í Dal til heiðurs Stínu sem varð fimmtug á dögunum. Ég veit ekki hvort það á að grilla hana, vonandi samt ekki þar sem oft vill kvikna í feitu kjöti á grilli!!!

 Jæja, hilsen í  bili..........................................

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2005 14:57:51 / eddabj

Sumarfrí sumarfrí

Jæja!!! Góðan dag!!

Þá er maður bara að fara í sumarfrí á morgun!!! Vinn fram að hádegi, bruna þá í bæinn í klippingu (eins gott að vera nýklipptur á sjónum!!) og svo er það bara borg óttans á grænu þrumunni!! Er búin að heimta að Sissinn bjóði mér á hamborgarabúllu Tómasar annað kvöld, hef nefninlega heyrt að þar fáist gríðarlega góðir hamborgarar. Svo skilst mér að lagt verði úr höfn um miðnætti........................

En hvað um það, vona bara að allir eigi dásamlegt sumar, veit ekki hvursu dugleg ég verð að skrifa hér í sumar.............kemur allt í ljós..................................

Blessssssssssssssssssssssssssssssssssss í bili, over and out.............


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.05.2005 13:36:34 / eddabj

Bráðum kemur sumar!!

Góðan dag!!

Ég er greinilega ekki sú duglegasta að blogga..........það líða heilu vikurnar á milli skrifa hjá mér!!! Svona er þetta bara að vera önnum kafinn kennari að vori :)

Hvernig finnst ykkur þetta yndislega vorveður??? Hvað er eiginlega í gangi hjá almættinu?? Hvern andskotann gerðum við eiginlega til að verðskulda þetta?? Það er vonandi að þetta sé ekki forsmekkurinn að sumrinu!!!

Nú er skólinn að verða búinn..........4 dagar eftir hjá nemendunum, skólaslit 31. maí og ég ætla að sigla burt 2. júní sem er barasta í næstu viku!!! Já takk fyrir!! Ég vona svo sannarlega að það verði hitabylgja í Evrópu á þeim tíma sem ég verð á siglingu :)

Júróvisjón um síðustu helgi? Lagið sem vann var ágætt, önnur fannst mér samt betri en mörg önnur verri! Þetta var nú engin smá brjósta og rassasýning!! Silikonbrjóstin út um allt hjá t.d. rúmensku og ísraelsku söngkonunum og rassasýningar hjá dönsurum í laginu frá Makedóníu (lagið frá Makedóníu var þetta hryllilega með hallærislega stráknum í bleika jakkanum).

Jæja, það er best að fara að koma sér af stað í bæinn.......er að fara með grænu þrumuna í skoðun...................................................................


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.05.2005 19:14:06 / eddabj

Hvítasunnuhelgin!!

Þá er þessi langa góða helgi að verða búin. Hún er barasta búin að vera mjög góð og skemmtileg!!

Á föstudagskvöldið fórum við Inga María og Regína í bíó og sáum þar stórskemmtilega mynd, The Wedding Date!! Ég hló oft og það gerist sko ekki oft þegar ég fer í bíó!!! Þegar heim var komið rúntuðum við dágóða stund. Þegar klukkan var farin að ganga tvö ákváðum við Inga María að skella okkur í drullugallann og kíkja á sauðburðinn í Laufási!! Það var alveg hreint dásamlega skemmtilegt :P Við náðum að sjá tvö lömb koma í heiminn og vorum reynslunni ríkari eftir þessa heimsókn!!

Í gær, hvítasunnudag, fór ég í tvær fermingarveislur þar sem ég fékk mikið og gott að borða, mmmmmmm :haha:

Aðal málið þessa helgi var auðvitað borgarísjakinn ógurlegi sem birtist okkur hér í gær!! Þegar fólk vaknaði í gærmorgunn var þessi líka fína hvíta ískirkja við sjóndeildarhringinn. Eftir messu var jakinn hins vegar horfinn. Þegar líða tók á daginn birtist hann hins vegar aftur og þessa stundina er hann á hægri siglingu inn fjörðinn. Til að sjá betur þessa dýrð fór ég með Ingólfi og Fjólu í Svínárnes í gærkvöldi. Það má eiginlega segja að umferðaröngþveiti hafi verið á þeirri leið enda allir æstir í að sjá þetta fyrirbæri. Í dag buðu svo Sjafnarmenn öllum sem vildu í siglingu til að skoða ískjakann nánar. Eiga þeir heiður skilinn fyrir þetta frábæra framtak:lol: Samkvæmt talningu pabba voru það 210 sem nýttu sér þetta dásemdar boð!!

Nú er skólaárið að verða búið, aðeins tvær vikur eftir hjá nemendum en nokkrir dagar umfram það hjá okkur kennurum. Það verður dásamlegt að komast í sumarfrí  :P Eins og flestir vita ætla ég með Sissanum í siglingu 2. júní og ég treysti á frábært veður í Evrópu þessa daga! Þá ætlar mín að liggja í sólbaði uppi á dekki allan tímann :P

Núna er klukkan að ganga átta og ég búin að sitja hér í 3 tíma við að búa til próf............ best að taka þetta með mér heim og vinna betur í þessu heima í kvöld þegar ég er búin að horfa á Ms Marple í sjónvarpinu :) Helv. flott kelling það :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5